fbpx
179839_10150100011439650_4003127_n

Hin hliðin – Birna Berg Haraldsdóttir

Birna bergFullt nafn: Birna Berg Haraldsdóttir

Gælunafn: Birna og er stundum kölluð Bibba á æfingum, veit ekki alveg með þetta Bibbu-nafn

Aldur: 19 ára

Hjúskaparstaða? Á lausu

Börn? Engin börn

Hvernig síma áttu? iPhone 4

Uppáhaldssjónvarpsefni? Ég horfi voðalega sjaldan á sjónvarp nema þá handbolta- og fótboltaleiki

Uppáhalds vefsíður: fotbolti.net, handbolti.is og youtube.com

Besta bíómyndin? The Dark Knight og Skyfall

Hvernig tónlist hlustar þú á? ég hlusta aðallega á hljómsveitirnar Red Hot Chili Peppers, Mumford and Sons og Coldplay

Uppáhaldsdrykkur: Vatn og ísköld hleðsla í fernu eftir æfingar

Hvað finnst þér best að borða á leikdegi? Chia-graut

Hvaða lag kemur þér í gírinn fyrir leik? Í dag er það Thrift Shop og Living on my own en annars er ég mjög gjörn á að breyta

Ertu hjátrúarfull/ur fyrir leiki? Nei, en ég hef ákveðna rútínu

Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Vinna hann og brosa svo framan í hann eftir á.

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Haukum

Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Mamma, Margrét Berg Theodórsdóttir

Erfiðasti andstæðingur? Ætli það sé ekki bara þetta týpíska…Ég sjálf

Ekki erfiðasti andstæðingur? Eldri í fótbolta, vinna okkur aldrei nema þegar við yngri erum miklu færri í liði.

Besti samherjinn? Mér líður ótrúlega vel í FRAM og segi þess vegna FRAM-liðið. Það er sama hvar litið er alls staðar eru toppmanneskjur í hverri stöðu.

Sætasti sigurinn? Bikarúrslitaleikur 2011

Uppáhaldslið í enska boltanum? Chelsea Football Club

Besti íþróttafréttamaðurinn? Mér finnst þessir kallir allir flottir og margir þeirra helvíti myndarlegir.

EKKI besti íþróttafréttamaðurinn? Mér finnst þeir allir flottir eins og áður kom fram. Reyndar fer það örlítið í taugarnar á mér þegar íþróttafréttamenn rugla saman leikmönnum en mistök gerast á bestu bæjum og ég fyrirgef þeim það.

Eitthvað að lokum? Þetta kemur frá dýpstu hjartarótum og ég veit að stelpurnar í liðinu er sammála mér, Handbolti er skemmtilegur!
Takk fyrir mig 

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!