FRAM hafði í dag betur gegn Víkingi í Ólafsvík 2-0 í A-riðli 1.deildar kvenna í knattspyrnu. Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir skoraði bæði mörk FRAM á síðustu tíu mínútum leiksins.
Dagmar skoraði fyrra markið sitt á 80.mínútu leiksins og það síðara þremur mínútum síðar. FRAM hefur nú unnið tvo leiki í röð eftir að hafa tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í deildinni og lyfti sér með sigrinum í dag upp í fjórða sæti. Næsti leikur liðsins er gegn Tindastóli á Sauðárkróki eftir viku, en Sauðkrækingar sitja á botni deildarinnar með eitt stig.