Handknattleiksmaðurinn Sveinn Þorgeirsson er genginn í raðir FRAM, en hann kemur á lánssamningi frá Haukum. Sveinn er 26 ára að aldri, er öflug skytta og einn albesti varnarmaður N1-deildar karla.
Sveinn er uppalinn Fjölnismaður og lék með Víkingum áður en hann gekk til liðs við Hauka, hvar hann lék um nokkurra ára skeið við góðan orðstír. Hann er eins og áður segir öflug skytta, var t.a.m. markahæsti leikmaður Víkinga fyrir fáeinum árum, og framlag hans í vörninni verður seint metið að fullu.