Hið margrómaða getraunastarf FRAM hefst laugardaginn 24.ágúst og verður starfrækt milli klukkan 10 og 12 á laugardögum í vetur.
Spekingar og spámenn hittast í FRAMhúsinu í Safamýri á laugardögum, ræða málin í sem víðustum skilningi og fylla út getraunaseðla helgarinnar. Fjölmargir möguleikar og getraunakerfi eru í boði í frábærum félagsskap.
Kíktu í kaffi milli klukkan 10 og 12 á laugardögum!