Við FRAMarar töpuðum í dag í Lengjubikarnum en þá vann lið Akranes sigur á okkar strákum í Egilshöll. Eina mark leiksins skoraði Jón Vilhelm Ákason um miðjan síðari hálfleikinn. Því miður höfum við ekki miklar upplýsingar um leikinn en sérlega gaman að sjá marga unga leikmenn í liðinu í dag og enn yngri og óreyndari á bekknum. FRAMtíðin er björt í Safamýrinni og ekkert hættulegt að tapa leik. Fæ meiri upplýsingar síðar.
ÁFRAM FRAM
Liðin í kvöld voru eftirfarandi:
Fram: Ögmundur Kristinsson, Arnþór Ari Atlason, Haukur Baldvinsson, Ásgeir Marteinsson, Viktor Bjarki Arnarsson, Halldór Arnarsson, Aron Bjarnason, Hafsteinn Briem, Sigurður Þráinn Geirsson, Ósvald Jarl Traustason, Alexander Már Þorláksson.
Varamenn: Hörður Fannar Björgvinsson (m), Jökull Steinn Ólafsson, Aron Þórður Albertsson, Andri Þór Sólbergsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson, Arnór Daði Aðalsteinsson, Sigurður Kristján Friðriksson.
ÍA: Árni Snær Ólafsson, Aron Ýmir Pétursson, Arnór Snær Guðmundsson, Ármann Smári Björnsson, Ingimar Elí Hlynsson, Garðar Gunnlaugsson, Jón Vilhelm Ákason, Andri Adolphsson, Hallur Flosason, Jón Björgvin Kristjánsson, Sindri Snæfells Kristinsson.
Varamenn: Arnar Már Guðjónsson, SVerrir Mar Smárason, Hákon Ingi Einarsson, Eggert Kári Karlsson, Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban, Einar Logi Einarsson, Þórður Þorsteinn Þórðarson.