Við FRAMarar eigum 4 drengi sem verða á fullu með landsliðum Íslands um helgina.
Landslið Íslands U-18 ára mun um helgina leika þrjá æfingaleiki við Dani 4-6 apríl í Danmörku.
Landslið Íslands skipað leikmönnum U-20 mun svo á sama tíma taka þátt í undankeppni EM sem fram fer í Skopje í Makedóníu. Stákarnir munu þar leika við Grikki, Ítali auk heimamanna í Makedóníu. Leikið er um sæti í lokakeppni EM sem fram fer í Austurríki í sumar. Það verður því spennandi fyrir okkur að fylgjast með strákunum um helgina og kannski enn skemmtilegra fyrir strákana að fá að takast á við svona verkefni.
Þeir sem valdir voru frá FRAM að þessu sinni eru:
U-18 ára landslið karla
Daníel Guðmundsson Fram
U-20 ára landslið karla
Arnar Freyr Ársælsson Fram
Stefán Darri Þórsson Fram
Arnar Freyr Arnarsson Fram
Gangi ykkur vel !