Stefán Darri Þórsson skrifaði í gær undir nýjan 2 ára samning við Fram. Stefán Darri er 19 ára og uppalinn í FRAMari. Stefán Darri hefur hann verið í lykilhlutverki í “94 árgangi FRAM sem hefur verið afar sigursæll í gegnum árin hjá FRAM. Stefán Darri er fjölhæfur leikmaður og getur leyst allar stöður úti á vellinum, mjög öflugur varnarmaður og hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands nú síðast með U-20 ára landsliði Íslands. Stefán Darri er klárlega einn af okkar framtíðar handboltamönnum.
Fram fagnar því nýjum samningi við Stefán Darri og hlakkar til samstarfsins.
Handknattleiksdeild FRAM