Garðar Benedikt Sigurjónsson línumaðurinn öflugi skrifaði í gær undir nýjan 2 ára samning við Fram. Garðar er 21 ára, uppalinn í Garðabæ en hefur leikið fyrir FRAM síðastliðin 3 keppnistímabil. Garðar hefur hann verið í lykilhlutverki hjá FRAM síðustu árin og varla misst úr leik síðan hann gekk til liðs við félagið. Garðar hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands. Það er því mikill fengur fyrir FRAM að ná áframhaldandi samningi við Garðar sem er klárlega einn af okkar framtíðar handboltamönnum. Fram fagnar því nýjum samningi við Garðar og hlakkar til samstarfsins.
Handknattleiksdeild FRAM