fbpx
Ögumndur víti

Ögmundur lék sinn fyrsta landsleik gegn Eistum í kvöld

ÖmmiÖgmundur Kristinsson fyrirliði okkar FRAMarar náði í kvöld merkum áfanga á sínum fótboltaferli þegar hann lék sinn fyrsta landsleik með A landsliði Íslands.  Ögmundur kom inn á í hálfleik í leik Íslands og Eistlands.  Ögmundur hefur áður leikið fyrir yngri landslið Íslands en leikurinn í kvöld var hans fyrsti á stóra sviðinu, heimaleikur gegn Eistum.  Ögmundur hefur nú oft haft meira að gera í markinu en í þessum leik en komst vel frá sínum. Við óskum Ögmundi til hamingju með áfangann og vonum að hann fá fleiri tækifæri með landsliði Íslands í framtíðinn.

ÁFRAM FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!