fbpx
IMG_0071

FRAM tapaði í Úlfarsárdalnum í gær.

Mfl.kv. 2014Það var hálf kalt í Úlfarsárdalnum þegar leikurinn var flautaður á í gær.  Annars voru stelpurnar ekkert að hugsa um það,  voru mættar hressar að vanda til leiks.
Fyrri hálfleikur var tíðinda lítill við áttum heldur á brattan að sækja en náðum þó góðum rispum og algjörlega inn í leiknum. Staðan í hálfleilk markalaus 0-0.
Síðari hálfleikur byrjaði eins  og sá síðari endaði, það var á brattan að sækja.   Það fór þannig að lokum að andstæðingarnir  náðu að brjóta hinn margfræga ís og þá má segja að það hafi flætt aðeins.   Þróttara stelpur settu á okkur  3 mörk á stuttum tíma, fyrsta markið kom  á 60 mín og það síðasta á 85 mín.  Lokatölur 0-3 og ekkert meira um það að segja.   Stelpurnar  náðu sér ekki á strik í gær, léku einfaldlega ekki vel og því var þetta erfiður leikur fyrir okkur.
Framundan eru 2 útileikir við KR og Sindra, sjáumst þá.

ÁFRAM FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!