Það var gríðarlegur fjöldi FRAMarar sem mætti í FRAMhúsið í dag á uppskeruhátið yngriflokka FRAM í fótbolta.
Eins og hefð er fyrir þá voru veitt verðlaun í öllum flokkum og síðan var öllum boðið upp á veitingar. Aðalsteinn Aðalsteinsson yfirþjálfari knattspyrnudeildar stjórnaði hátiðinni en leikmenn mfl.ka. og kv. sáu um að afhenda krökkunum verðlaunin. Allir iðkendur í 8-7-6 fl. karla og kvenna fengu verðlaunapening en í 5 -3 fl. voru veitt tvenn verðlaun, besti leikmaður og verðlaun fyrir framfarir. Að lokum var FRAM dómari ársins valinn og Eiríksbikarinn afhentur þeim leikmanni sem þótti skara framúr bæði innan vallar sem utan. Þeir sem fengu verðlaun í dag voru.
Leikmaður 5 fl.ka. Mikael Egill Ellertsson
Mestar framfarir í 5. fl.ka. Arnór Máni Daðason
Leikmaður 5. fl.kv.Birta Breiðdal
Mestar framfarir í 5. fl.kv.Aníta ýr Þorvaldsdóttir
Leikmaður 4 fl.ka. Unnar Steinn Ingvarsson
Mestar framfarir í 4. fl.ka. Jón Haukur Bjarnason
Leikmaður 4. fl.kv.Ólína Sif Hilmarsdóttir
Mestar framfarir í 4. fl.kv.Karen Harpa Rúnarsdóttir
Leikmaður 3 fl.ka. Edvard Dagur Edvardsson
Mestar framfarir í 3. fl.ka. Arnór Siggeirsson
Leikmaður 3. fl.kv.Perla Njarðardóttir
Mestar framfarir í 3. fl.kv.Esther Ruth Aðalsteinsdóttir
FRAM dómari ársins Þorleifur Lúðvíksson
Eiríksbikarinn 2014 Helgi Guðjónsson
Til hamingju FRAMarar !