fbpx
Bikar vefur

Íþróttamaður FRAM 2014 verður útnefnd/ur 30.des. kl. 18:00

Bikar góð.Íþróttamaður Fram 2014 verður útnefndur þriðjudaginn 30.desember.

Á 100  ára afmæli FRAM 2008 var ákveðið að taka upp þann sið að kjósa „Íþróttamann/konu ársins“ – aðila sem félagið telur að hafi náð afburða árangri í íþrótt sinni ásamt því að vera fyrirmynd FRAM innan vallar sem utan.

Tilkynnt verður um valið á “Íþróttamanni FRAM 2014″  í hófi sem haldið verður þriðjudaginn 30. desember  kl. 18.00 í veislusal FRAM.

 

Þeir FRAMarar sem tilnefndir eru fyrir árið 2014 eru:

Bryndís María Theódórsdóttir           Knattspyrna
Eiður Darri Jóhannsson                    Taekwondo
Michelle Koleva                                  Taekwondo
Orri Gunnarsson                                 Knattspyrna
Sigurbjörg Jóhannsdóttir                  Handknattleikur
Stefán Darri Þórsson                         Handknattleikur

Allir FRAMarar eru velkominir í hófið og væri gaman að sjá sem flesta í FRAMhúsi þennan dag.

Minnum svo á Flugeldasölu FRAM í íþróttahúsi FRAM og félagsheimili FRAM  í Úlfarsárdal.

Knattspyrnufélagið FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!