Um helgina lék U-15 ára landslið kvenna 2 vináttulandsleiki gegn Skotum hér á Íslandi.
Fyrri leikur liðanna fór fram laugardag og sá síðari fór fram á sunnudaginn. Báðir leikirnir fóru fram í Garðabæ. Ekki fer miklum sögum af úrslitum í þessum leikjum og ekki nokkur leið að fá úrslit úr þessum leikjum á heimasíðu HSÍ.
Við FRAMarar eru aftur á móti stoltir af því að hafa átt 3 leikmenn sem léku þessa leiki en þær voru:
Harpa María Friðgeirsdóttir, Fram
Erna Guðlaug Gunnarsdóttir, Fram
Lena Valdimarsdóttir, Fram
Til hamingju stelpur.