Við FRAMarar héldum í dag súpufund númer þrjú. Við erum alsælir með mætinguna, enda fjölgaði heldur betur í dag, fullt af nýjum andlitum sem var frábært að sjá. Okkur telst til að það hafi verið tæplega 120 menn og konur sem gæddu sér á þessari líka fínu súpu. Það var virkilega skemmtilegt að sjá alla þessa FRAMarar á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins. Í dag sáum við menn og konur sem ekki hafa mætt áður og jafnvel ekki sést lengi í húsinu eða á vellinum.
Það er von okkar að við sjáum alla þá sem komu í dag og enn fleiri þegar við höldum næsta fund sem verður 24. apríl. Hvetjum alla FRAMara til að mæta og hjálpa okkur að láta fleiri vita af þessari velheppnuðu uppákomu.
Takk fyirr komuna og sjáumst í apríl.
ÁFRAM FRAM