Á miðvikudag 22. apríl héldum við FRAMarar súpufund númer fjögur þetta árið. Við erum alsælir með mætinguna þrátt fyrir að margir hafi boðað forföll en við ákváðum að færa súpufundinn af föstudegi 24. apríl þar sem enn fleiri höfðu boðað forföll þann dag. Margir sem tóku langa helgi og fögnuðu sumri í gær. En mætingin á miðvikudag var sem sagt mjög góð og rétt tæplega 70 FRAMarar mættu og gæddu sér á þessari líka fínu súpu, þeirri bestu hingað til sögðu þeir með mestu reynsluna. Það var virkilega skemmtilegt að sjá alla þessa FRAMarar á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins. Við erum enn að sjá ný andlit og það er frábært, þurfum að halda áfram að láta FRAMara vita og taka þá með á súpufund.
Það er von okkar að við sjáum alla þá sem komu í dag og enn fleiri þegar við höldum næsta fund sem verður föstudaginn 29. apríl. Hvetjum alla FRAMara til að mæta og hjálpa okkur að láta fleiri vita af þessari velheppnuðu uppákomu.
Takk fyirr komuna og sjáumst í maí.
ÁFRAM FRAM