fbpx
íþróttaskóli

Skráning í íþróttaskóla FRAM 2016 í Ingunnarskóla er hafinn

Gr 2015Íþróttaskóli Fram fyrir börn 18 mánaða og eldri  hefst í íþróttahúsi Ingunnarskóla laugardaginn 16. janúar 2016.

Námskeiðið verður á laugardögum,  hefst 16. janúar og lýkur 9. apríl  (12 tímar).

Verð kr. 11.000.- (Systkinaafsláttur kr. 1.000- á barn).

Í íþróttaskólanum í vetur verða þrír hópar:

18-30 mánaða börn (fædd í júní 2013 – júní 2014)
kl. 09:00 – 09:45
2 ½ – 3 ára börn (fædd í janúar 2012 – maí  2013)
kl. 10:00 – 11:00
4 ára börn og eldri ( 2011 og fyrr ) kl. 11:00 – 12:00

*skráning í hópa miðast við afmælisdag barns*

Vegna mikillar aðsóknar á síðustu námskeið er athygli vakin á því að takmarkaður sætafjöldi er í boði – fyrstir koma fyrstir fá. Íþróttakennarar í íþróttaskóla Fram í Grafarholti verða Kristinn, Stefán Baldvin  og Valgerður.

Allar nánari upplýsingar eru í símum 587-8800 í Framheimilinu í Úlfarsárdal og 533-5600 í Íþróttahúsi Fram.  Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið ithrottaskoli.fram113@gmail.com.

Skráning er hafin og fer fram á heimasíðu Fram https://fram.felog.is/ eða í símum 587-8800 / 533-5600.  Ekki er tekið við skráningum á staðnum.

Sjáumst hress og kát.

Með íþróttakveðju

Almenningsíþróttadeild Fram

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!