Ragnar Þór Kjartansson, Þorsteinn Gauti Hjálmarsson og Birkir Smári Guðmundsson hafa framlengt samninga sína við FRAM til ársins 2018. Þetta eru ungir og efnilegir handboltamenn, Gauti kom til FRAM frá Þrótti fyrir tveimur árum. Birkir Smári og Ragnar Þór eru uppaldir FRAMarar. Þeir eiga allir að baka marga leiki með meistaraflokki FRAM seinustu árin og hafa verið að fá stærra hlutverk í liðinu.
Það er því mikið ánægjuefni að hafa þessa flottu drengi í meistaraflokki FRAM á næstu árum.
Handknattleiksdeild FRAM
Ragnar Þór Kjartansson, Þorsteinn Gauti Hjálmarsson og Birkir Smári Guðmundsson