fbpx
blak fram vefur

Blakskor Framöldunga leitar þjálfara í vetur

Skokkhópur FRAM IIÍ sumar tók sig saman hópur áhugasamra blakspilara og stofnaði félag undir merkjum Fram með það að markmiði að koma á fót blakliði öldunga í Grafarholti. Félagið hefur fengið úthlutað sal í Ingunnarskóla  og stefnum við á að hefja æfingar strax í fyrstu viku september. Það er bara einn hængur á … …okkur vantar þjálfara.

Ertu blakþjálfari… langar þig að þjálfa áhugasama Framöldunga. Ef svo er þá endilega settu þig í samband við okkur.

Stjórn Blakskors Framöldunga

Sverrir Ben  S.6620262  sverrir@wendel.is
Heiða Björk Jósefsdóttir  heidab@fme.is

Áríðandi tilkynning til þeirra sem ætla að vera með í blakinu í vetur!
Mæta í Leirdalshúsið mánudaginn 22. ágúst nk. kl. 20:00

Fyrsti fundur stjórnar var haldinn 29. júní sl. og á þeim fundi skipti stjórnin með sér verkum, Sverrir Benónýsson, formaður, Heiða Björk Jósefsdóttir, gjaldkeri og Kristín Loftsdóttir, ritari.

Mánudaginn 22. ágúst nk. kl. 20 í Leirdalshúsinu verður haldinn fyrsti félagsfundur í blakskors Framöldunga. Megin tilgangur fundarins að skrá þá sem ætla að vera með okkur á æfingum í vetur en auk þess verður farið yfir prakstík atriði eins og kostnað og fleira.

Á fundinum verður látinn ganga skráningarlisti. Þegar við sjáum hversu margir ætla að vera með okkur í vetur verður hægt að áætla betur kostnað. Lágmarksfjöldi þátttakenda til grundvöllur sé til að fara af stað er tuttugu manns.

Deildin hefur fengið æfingatíma á þriðjudögum klukkan 20 í Ingunnarskóla. Ef næg þátttaka fæst hefjast æfingar strax í byrjun september. Þar sem ekki er komið á hreint hvort þátttaka verði næg þá er ekki enn komin þjálfari.

Annað, við erum að leita að þjálfara. Ef einhver væri til í að vera þjálfari eða þekkir þjálfara sem er til í að taka að sé hóp áhugasamra blakspilara þá er viðkomandi beðin að setja sig í samband við Sverri formann.

f.h. stjórnar

 

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!