Pascaal hefur sannað sig á mótum undanfarinna ára sem efni í öflugan Taekwondo kappa. Hann er fjórði uppaldi Framarinn til að að tryggja sér svarta beltið. Í ár hefur hann keppt á fjölda móta m.a. Norðurlandamótinu í Danmörku og Berlin Open og unnið til tvennra gullverðlauna á bikarmótum hérlendis. Hann æfir af krafti og stefnir á Norðurlandamótið í Svíþjóð 2017.
Pascaal er hvetjandi og góð fyrirmynd fyrir aðra iðkendur og það verður gaman að fylgjast með honum á komandi árum. Á undan honum fengu Helgi Valentín Arnarson, Viktoría Kristín Arnardóttir og Kjartan Bragi Ágústsson svarta beltið.
Taekwondodeild FRAM