Við FRAMarar héldum í dag súpufund númer þrjú. Við erum alsælir með mætinguna, nokkur ný andlit sem var frábært að sjá. Okkur telst til að það hafi verið tæplega 70 menn og konur sem gæddu sér á þessari líka fínu súpu. Það var virkilega skemmtilegt að sjá alla þessa FRAMarar á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins.
Það er von okkar að við sjáum alla þá sem komu í dag og enn fleiri þegar við höldum næsta fund sem verður á nýju ári eða 27. janúar 2017.
Hvetjum alla FRAMara til að mæta og hjálpa okkur að láta fleiri vita af þessari velheppnuðu uppákomu.
Minnum á val á „íþróttamanni FRAM 2016“ föstudaginn 30. des. Kl. 18:00. Þar eru allir velkomnir
Takk fyirr komuna
ÁFRAM FRAM