Knattspyrnudeild Fram og Sigurður Þráinn Geirsson hafa náð samkomulagi um að Sigurður Þráinn verði áfram í herbúðuum félagsins. Samningurinn er til tveggja ára en Sigurður Þráinn er uppalinn Framari. Hann lék 10 leiki í Inkasso-deildinni í sumar en fyrri hluta leiktíðar glímdi hann við meiðsli.
Sigurður Þráinn er 21.árs gamall og stjórn knattspyrnudeildar Fram lýsir yfir mikilli ánægju með að hafa tryggt sér krafta þessa öfluga og fjölhæfa leikmanns næstu tvö árin.
Kanttspyrnudeild Fram