Reykjavíkurmótið í handbolta hefur verið spilað tvær síðustu helgar hér í borginni. Það var ákvðið að færa Reykajvíkurmótið í 5 og 6 fl. karla og kvenna sem alltaf hefur verið spila í september og prufa að leika það í desember. Mér skilst að almennt hafi þetta tekist vel en ljóst að þetta verður endurskoðað í ljósi reynslunnar. Við FRAMarar náðum að vinna titla í einhverjum flokkum þó ég sé ekki endanlega með úrslit í öllum flokkum.
Stelpurnar í 6. fl.kvenna A úr Grafarholti unnum sigur um helgina og Strákarnir í 5. fl.ka. unnu líka sitt mót. núna um helgina. Bæði þessi lið hafa verið að spila vel í vetur og eru því vel að þessu sigri kominn.
Til hamingju FRAMarar
ÁFRAM FRAM