Stelpurnar okkar í handboltanum eru komnar í undanúrslit Coca Cola bikarsins í handbolta. Undanúrslitaleikurinn verður að venju í Laugardalshöll þar sem umgjörðin verður glæsileg og stemmingin hrikaleg með þinni hjálpa og þínu stuðningi.
Nú biðlum við til allra FRAMara nær og fjær að sýna stelpunum stuðning og hjálpa þeim að komast í úrslitaleikinn sem verður leikinn laugardaginn 25. feb. kl. 13:30.
Miðasala á leikinn er hafinn og verður hægt að kaupa miða í forsölu alla virka daga fram að leik auka þess sem miðar verða seldir á leikjum mfl. karla og kvenna um helgina, (18-19 feb.)
Það er mjög mikilvægt að FRAMarar kaupi miða í forsölu því þá rennur aðgangseyrir að öllu leyti til FRAM, en ef þú kaupir miða á leikdag rennur aðgangseyrir til HSÍ.
Kaupum miða í forsölu og styðjum FRAM.
Miðaverð á leikinn er kr. 2000.- fyrir fullorðna og kr. 500.- fyrir börn 6 – 15 ára
Forsala í Íþróttahúsi FRAM og FRAMhúsi Úlfarsárdal.
Alla vika daga fram að leik frá kl. 09:00-17:00.
Laugardag 18. feb. á leik FRAM og ÍBV karla.
Sunnudag 19. feb. á leik FRAM og Gróttu kvenna
Hægt er að kaupa miða á netinu en þá þarf að nota þessar slóðir til að kaupa því þá fær FRAM aðgangseyririnn sem er mjög mikilvægt.
Fram fullorðinsmiðar https://www.tix.is/is/buyingflow/specialoffer/5vkn3sx4qnhme/
Fram barnamiðar https://www.tix.is/is/buyingflow/specialoffer/ut3hihc2yhybc/
ÞETTA VERÐA ALLIR AÐ SJÁ !
MÆTUM OG HVETJUM FRAM stelpur. TIL SIGURS !
ÁFRAM FRAM