Það var gríðarlegur fjöldi FRAMarar sem mætti í FRAMhúsið á þriðjudag á uppskeruhátið yngriflokka FRAM í fótbolta. Það var frekar þröngt um okkur hérna í Safamýrinni í gær en allir sáttir, orðið erfitt fyrir okkur að halda svona stóra samkomu hér í húsinu án þess að taka íþróttasalinn undir.
Eins og hefð er fyrir þá voru veitt verðlaun í öllum flokkum og síðan var öllum boðið upp á veitingar.
Júlíus Guðmundsson formaður barna og unglingaráðs knattspyrnudeildar stjórnaði hátiðinni en leikmenn 2. fl. karla og þjálfarar félagsins sáu um að afhenda krökkunum verðlaunin ásamt stjórnarmönnum í barna og unglingaráði.
Allir iðkendur í 8-7-6 fl. karla og kvenna fengu verðlaunapening en í 5, 4, 3 og 2. flokki voru veitt tvenn verðlaun, besti leikmaður og verðlaun fyrir framfarir.
Að lokum var FRAM dómari ársins valinn og Eiríksbikarinn afhentur.
Það er hefð fyrir því að veita einum leikmanni yngri flokkanna Eiríksbikarinn sem er gefinn af Ríkarði Jónssyni, landsliðsmanni Fram til margra ára, til minnigar um Eirík K Jónsson knattspyrnumann Fram.
Eiríksbikarinn er veittur þeim einstakling sem með ástund sinni og framkomu innan sem utanvallar er sjálfum sér og félaginu til sóma.
Þeir sem fengu verðlaun í gær voru:
5. fl. karla
MESTU FRAMFARI: Breki Baldursson
BESTI LEIKMAÐURINN : Birkir Jakob Jónsson
5. fl. kvenna
MESTU FRAMFARI: Eydís Pálmadóttir
BESTI LEIKMAÐURINN : Bergdís Sveinsdóttir
4. fl. karla
MESTU FRAMFARI: Friðrik Óskar Reynisson
BESTI LEIKMAÐURINN : Börkur Þorri Þorleifsson
4. fl. kvenna
MESTU FRAMFARI: Harpa Guðjónsdóttir
BESTI LEIKMAÐURINN : Nótt Benediktsdóttir
3. fl. karla
MESTU FRAMFARI: Steinar Bjarnason
BESTI LEIKMAÐURINN : Mikael Egill Ellertsson
3. fl. kvenna
MESTU FRAMFARI: Þorbjörg Kristinsdóttir
BESTI LEIKMAÐURINN: Auður Erla Gunnarsdóttir
Dómari ársins
Anna Valdís Guðmundsdóttir
Eiríksbikarinn
Eiríksbikarinn 2017 hlaut Már Ægisson
Til hamingju FRAMarar