fbpx
Hópmynd Safamýri haust 2017

Íþróttaskóli Fram fyrir 3  – 5 ára börn  hefst í íþróttahúsi Háaleitisskóla/Álftamýri  laugardaginn 13. janúar 2018.

ÍÞRÓTTASKÓLI FRAM

Íþróttaskóli Fram fyrir 3  – 5 ára börn  hefst í íþróttahúsi Háaleitisskóla/Álftamýri  laugardaginn 13. janúar 2018.

3ja til 5 ára börn eru frá kl.10:45 til 11:45 (fædd ´13 – ´15)

Helsta markmið okkar á námskeiðinu í vetur er að börnin kynnist  íþróttum á skemmtilegan og fjölbreyttan hátt.

Helstu markmið eru síðan að æfa grófhreyfingar, jafnvægi, styrk, úthald og líkamsvitund. Að læra hópleiki og reglur í þeim og styrkja með því félagsfærni barnanna.
Auk þess á íþróttaskólinn að vera skemmtileg samverustund foreldra og barns.

Við viljum benta ykkur á að skoða facebook síðu skólans “íþróttaskóli FRAM” þar er hægt að sjá hvað við höfum verið að gera síðastliðin ár.

Námskeiðið verður á laugardögum og hefst 13. jan. og lýkur 7. apríl  (12 tímar).

Verð kr. 12.000.- (Systkinaafsláttur 1000 kr. á barn).
Íþróttakennarar í íþróttaskóla Fram í Safamýri verða  Malgorzata og leiðbeinendur Sigríður Þóra, Hildur og Ernest.

Allar nánari upplýsingar eru í síma 533-5600 í Íþróttahúsi Fram.

Skráning er hafin og fer fram á heimasíðu Framhttps:// fram.felog.is/ eða í símum 533-5600.
Ekki er tekið við skráningum á staðnum.

Hægt er að fá aðstoð við skráningar  í síma 533-5600/587-8800

Sjáumst hress og kát.

Með íþróttakveðju  Almenningsíþróttadeild Fram

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!