Nú ætlum við að halda áfram að hittast yfir súpudisk, fjórði súpufundur vetrarins verður næsta föstudag 26. Janúar.
Það var mjög góð mæting í síðasta súpuhádegi en rúmlega 70 manns mættu og almenn ánægja með hvernig til tókst. Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum.
Boðið verður upp á súpu og brauð eins og venjulega.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.
Verðinu verður stillt í algjört hóf eða eingöngu á kostnaðarverði kr. 500.-
Fjórði fundurinn í súpuröðinni verður föstudaginn 26. jan. kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal FRAM Safamýri 26
Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu og endilega takið með ykkur félaga.
Kveðja Knattspyrnufélagið FRAM