Í gær kvöldi urðu stelpurnar okkar Íslandsmeistarar í handbolta kvenna í þvílíkum spennuleik.
FRAMhúsið kjaft fullt og leikurinn hin besta skemmtun.
Ég ætla ekki að skrifa um þennan leik, það er bara ekki hægt núna.
Mig langar bara að þakka öllum þeim sjálfboðaliðum sem komu að okkar leikjum í vetur.
Starf ykkar er ómetanlegt.
Við stuðningsmenn FRAM vil ég segja, við FRAMarar erum mjög stoltir af ykkur og þið voruð frábær í gær
og í allan vetur. Án ykkar væri ekkert gaman að starfa í þessu.
Stelpur Innilega til hamingju með titilinn, þið voruð frábærar.
Ekki verra fyrir FRAM að fá Íslandsmeistaratitil frá ykkur í 110 ára afmælisgjöf.
Takk fyrir alla skemmtunina í vetur og vonandi sjáum við ykkur allar aftur í haust.
Þið sem hafið gaman af myndum ættuð að skoða leikinn í gær, þessar myndir segja meira en mörg orð http://frammyndir.123.is/pictures/
Til hamingju FRAMarar