fbpx
hressir krakkar

Sumarskóli FRAM Grafarholti og Úlfarsárdal 2018, skráning hefst 11. maí

SUMARNÁMSKEIÐ FRAM 2018 Grafarholt og Úlfarsárdalur

Knattspyrnuskóli FRAM og Íþróttaskóli FRAM eru starfræktir í Grafarholti og Úlfarsárdal í sumar. Þar býður félagið upp á öruggt umhverfi og góða aðstöðu í hjarta hverfisins. Námskeiðin fara fram í og við Ingunnarskóla en ef veður er vont þá verða æfingar færðar inn í íþróttahús Ingunnarskóla. Knattspyrnuskólinn verður starfræktur á æfingasvæði FRAM í Úlfarsárdal. Handboltanámskeiðið er haldið í íþróttahúsi Ingunnarskóla.

 ÍÞRÓTTASKÓLI  FRAM

Íþróttaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 5-10 ára sem hafa gaman af íþróttum og útivist.  Farið verður í fjölbreytta og skemmtilega leiki, hinar ýmsu íþróttagreinar kynntar og einnig verður farið í stuttar ferðir.  Skólinn verður rekinn samhliða knattspyrnuskólanum þannig að einstaklingar geta valið hvort þeir eru eingöngu í knattspyrnu eða vilja hafa mikla fjölbreytni.
Hvert námskeið stendur í 2 vikur frá kl. 09:00-16:00 alla virka daga.  Jafnframt er boðið upp á hálfsdagsnámskeið frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00. Hægt er að velja fyrir eða eftir hádegi,  einnig knattspyrnuskóla fyrir hádegi og íþróttaskóla eftir hádegi. Ekki verður boðið upp á heitan mat og þurfa börnin að koma með nesti.
Boðið verður upp á gæslu í Ingunnarskóla  frá kl. 07:45-09:00 og kl. 16:00-16:30.

Námskeið 1.  07 -15. júní     09:00-16:00 (7 dagar)
Námskeið 2.  18 – 29. júní    09:00-16:00
Námskeið 3.  02 – 13. júlí     09:00-16:00
Námskeið 4.  16 – 20. júlí     09:00-16:00 (viku námskeið).

HANDBOLTASKÓLI FRAM

Handboltaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 6-14 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig.  Námskeiðið stendur í 1 viku, frá kl. 09:00-12:00 (börn fædd 2007-2010) og 13:00-16:00 (börn fædd 2003-2006) virka daga.  Námskeiðið fer fram í íþróttahúsi Ingunnarskóla. Kennarar eru íþróttamenntaðir og handboltaþjálfarar hjá FRAM.

Námskeið 1.   13 –  17. ágúst         09:00-12:00   (börn fædd 2008-2011).
Námskeið 2.   13 – 17. ágúst         13.00-16.00   (börn fædd 2004-2007).

KNATTSPYRNUSKÓLI FRAM

Knattspyrnuskóli FRAM er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 5-12 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Mikil áhersla er lögð á leikformið hjá yngstu þátttakendunum en meiri sérhæfing og tækni hjá þeim eldri.  Hvert námskeið stendur í 2 vikur, frá kl. 09:00-12:00 alla virka daga.
Boðið er upp á gæslu í félagsheimili FRAM í Úlfarsárdal frá kl.07:45 og er það innifalið í gjaldinu.

Námskeið 1.  07 -15. júní     09:00-12:00 (7 dagar)
Námskeið 2.  18 – 29. júní    09:00-12:00
Námskeið 3.  02 – 13. júlí     09:00-12:00
Námskeið 4.  16 – 20. júlí     09:00-12:00 (viku námskeið).

Skráning

Skráning hefst  2. maí og fer fram á heimasíðu FRAM www.fram.is. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Nóra skráningarkerfi FRAM, https://innskraning.island.is/?id=fram.felog.is

Námskeiðsgjald í knattspyrnuskóla og íþróttaskóla ½ dagur er kr. 10.500.-

Íþróttaskóli 09:00-16:00  kr. 20.000.-

Námskeiðsgjald í handboltaskóla er kr. 5500.-  (5 dagar).

Veittur er 10% systkinaafsláttur og einnig er veittur 10% afsláttur ef keypt eru fleiri en eitt námskeið. Innifalið í verði er: Gæsla, bolur, veisla í lok hvers námskeiðs og skemmtilegt námskeið unnið af fagfólki.

Allar nánari upplýsingar um námskeið á vegum FRAM er hægt að fá í síma 587-8800 skrifstofa FRAM í Úlfarsárdal og 533-5600 skrifstofa FRAM í Safamýri milli kl 09:00 og 16:00 og í gegnum tölvupóst  toti@fram.is og dadi@fram.is

Í von um gott samstarf í sumar

Daði Guðmundsson íþróttafulltrúi FRAM  Grafarholti og Úlfarsárdal

 

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0