SUMARNÁMSKEIÐ FRAM 2018 Safamýri
Knattspyrnuskóli FRAM og Íþróttaskóli FRAM eru starfræktir á íþróttasvæði FRAM v/Safamýri. Þar býður félagið upp á öruggt umhverfi og góða aðstöðu í hjarta hverfisins. Námskeiðin fara fram á æfingasvæði FRAM en ef veður er vont þá verða æfingar færðar inn í íþróttahús FRAM. Handboltanámskeiðið er haldið í íþróttahúsi FRAM.
ÍÞRÓTTASKÓLI FRAM
Íþróttaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 5-10 ára sem hafa gaman af íþróttum og útivist. Farið verður í fjölbreytta og skemmtilega leiki, hinar ýmsu íþróttagreinar kynntar og einnig verður farið í stuttar ferðir. Skólinn verður rekinn samhliða knattspyrnuskólanum þannig að einstaklingar geta valið hvort þeir eru eingöngu í knattspyrnu eða vilja hafa mikla fjölbreytni. Hvert námskeið stendur í 2 vikur frá kl. 09:00-16:00 alla virka daga. Jafnframt er boðið upp á hálfsdagsnámskeið frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00.
Hægt er að velja fyrir eða eftir hádegi, einnig knattspyrnuskóla fyrir hádegi og íþróttaskóla eftir hádegi. Ekki verður boðið upp á heitan mat og þurfa börnin að koma með nesti.
Boðið verður upp á gæslu í Íþróttahúsi FRAM frá kl. 07:45-09:00 og kl. 16:00-16:30.
Námskeið 1. 07 -15. júní 09:00-16:00 (7 dagar)
Námskeið 2. 18 – 29. júní 09:00-16:00
Námskeið 3. 02 – 13. júlí 09:00-16:00
Námskeið 4. 16 – 20. júlí 09:00-16:00 (viku námskeið).
HANDBOLTASKÓLI FRAM
Handboltaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 6-14 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Námskeiðið stendur í 1 viku, frá kl. 09:00-12:00 virka daga. Námskeiðið fer fram í íþróttahúsi FRAM. Kennarar eru íþróttamenntaðir og handboltaþjálfarar hjá FRAM.
Námskeið 1. 13 – 17. ágúst 09:00-12:00 (börn fædd 2005 – 2011).
KNATTSPYRNUSKÓLI FRAM
Knattspyrnuskóli FRAM er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 5-12 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Mikil áhersla er lögð á leikformið hjá yngstu þátttakendunum en meiri sérhæfing og tækni hjá þeim eldri. Hvert námskeið stendur í 2 vikur, frá kl. 09:00-12:00 alla virka daga. Boðið er upp á gæslu í Íþróttahúsi FRAM frá kl.07:45 og er það innifalið í gjaldinu.
Námskeið 1. 07 -15. júní 09:00-12:00 (7 dagar)
Námskeið 2. 18 – 29. júní 09:00-12:00
Námskeið 3. 02 – 13. júlí 09:00-12:00
Námskeið 4. 16 – 20. júlí 09:00-12:00 (viku námskeið).
Skráning
Skráning hefst 2. maí og fer fram á heimasíðu FRAM www.fram.is Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Nóra skráningarkerfi FRAM, https://innskraning.island.is/?id=fram.felog.is
Námskeiðsgjald í knattspyrnuskóla og íþróttaskóla ½ dagur er kr. 10.500.-
Íþróttaskóli 09:00-16:00 kr. 20.000.-
Námskeiðsgjald í handboltaskóla er kr. 5500.- (5 dagar).
Veittur er 10 % systkinaafsláttur og einnig er veittur 10 % afsláttur ef keypt eru fleiri en eitt námskeið. Innifalið í verði er: Gæsla, bolur, veisla í lok hvers námskeiðs og skemmtilegt námskeið unnið af fagfólki.
Allar nánari upplýsingar um námskeið á vegum FRAM er hægt að fá í síma 533-5600 skrifstofa FRAM Safamýri milli kl 09:00 og 16:00 og í gegnum tölvupóst toti@fram.is og dadi@fram.is
Í von um gott samstarf í sumar
Þór Björnsson íþróttastjóri FRAM