fbpx
5. fl

5. fl. kvenna yngri Reykjavíkurmeistari 2018

Stelpurnar okkar í 5. fl. Kvenna yngri og eldri léku á Reykjavíkurmótinu í handbolta um helgina og var leikið í Austurbergi.
Þetta var sameiginlegt mót fyrir allan 5. flokkinn, þ.e. 5. flokkur yngri og eldri spiluðu á sama mótinu.

Fram var með flest lið skráð á mótinu eða fjögur, tvö í eldri og tvö í yngri. Þetta fór þannig að Fram 1 í eldri vann annan riðilinn og Fram 1 í yngri vann hinn riðilinn og mættust þau því í úrslitum.

Mjög jafn leikur en Fram eldri leiddi samt allan leikinn. Fram yngri náði svo að jafna og tryggja sér framlengingu með marki beint úr aukakasti eftir í leiktímanum lauk.
Framlengingin var síðan mjög jöfn en Fram yngri náði að stela sigrinum með marki á síðustu sekúndunum.
Gríðarlegur spennuleikur.

Til hamingju FRAMarar

ÁFRAM FRAM

 

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0