Handknattleikskona ársins 2018 er Þórey Rósa Stefánsdóttir, hægri hornamaður úr Fram í Reykjavík.
Þórey Rósa er 29 ára, fædd 14. ágúst 1989. Hún spilaði með ÍR til 16 ára aldurs þegar hún skipti yfir í Fram og hóf þar sinn feril með meistaraflokki haustið 2005.
Þórey tók þátt í miklum uppgangi kvennaliðs Fram áður en hún fór í atvinnumennsku til hollenska liðsins E&O Emmen. Þá spilaði Þórey í stuttan tíma með Vfl Oldenburg áður en hún flutti sig til Team Tvis Holstebro í Danmörku sumarið 2011. Hún var Evrópumeistari vorið 2013 með Holstebro en flutti sig síðar það sumar til Noregs þar sem Þórey spilaði með Vipers Kristiansand næstu 4 ár í toppbaráttu í norsku deildinni.
Þórey flutti heim 2017 og gekk til liðs við Fram á nýjan leik, þar sem hún varð Íslands- og bikarmeistari með Fram nú í vor.
Þann 20. apríl 2011 lék Þórey sinn fyrsta landsleik í Antalya í Tyrklandi gegn heimakonum og skoraði 2 mörk í leiknum. Þórey hefur verið lykilmaður í A landsliði kvenna undanfarin ár, hún hefur spilað 96 landsleiki og skorað í þeim 275 mörk. Auk þess lék Þórey á sínum tíma 31 unglingalandsleik og skoraði í þeim 72 mörk.
Þá var Þórey Rósa fyrirliði A landsliðs kvenna sem tryggði sér sæti í umspilsleikjum fyrir HM næsta sumar.