fbpx
jón og félagar vefur

Bóndadags súpa

Við FRAMarar héldum í dag þriðja súpufund vetrarins og jafnframt þann fyrsta á nýju ári.  Okkur telst til að það hafi verið um 70  menn og konur sem gæddu sér  á þessari líka fínu súpu. Súpan í dag var alveg frábær, sú besta hingað til, sannkölluð “Bóndadagsúpa” en boðið var upp á alvöru kjötsúpu. Fengum mikið hrós í dag fyrir súpuna.

Það er alltaf gaman að sjá alla þessa FRAMarar á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins. Margt að ræða í dag enda bjartur og fallegur dagur.

Næsti súpufundur verður svo föstudaginn 22. febrúar og við bíðum spennt eftir þeirri súpu.

Við FRAMarar þökkum öllum þeim sem mættu í dag, það var vel mætt, fyrir það erum við mjög þakklát og hvað þessi uppákoma heppnast alltaf vel.

Takk fyrir komuna og sjáumst í febrúar.

ÁFRAM FRAM

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0