Strákarnir okkar í 4. fl. yngri urðu í dag Coca Cola Bikarmeistarar í handbolta. Úrslitaleikurinn var leikinn að venju í laugardalshöll að viðstöddu fjölmenni.
Strákarnir okkar léku vel í þessum leik, leiddu allan fyrr hálfleik og voru yfir í hálfleik 12-9.
Í þeim síðari bættu þeir heldur í og voru yfir ein átta, níu mörk á tímabili.
Leikurinn endaði með öruggum sigri FRAM 26-20. Algjörlega verðskuldaður sigur og strákarnir virkilega flottir í dag.
Kjartan Þór Júlíusson FRAM var valinn maður leiksins, drengurinn að spila virkilega vel og sett ein ellefu mörk í þessum leik, til hamingju Kjartan.
Til hamingju FRAMarar, Coca Cola Bikarmeistarar 2019.
ÁFRAM FRAM
Fullt af myndum úr leiknum koma hér http://frammyndir.123.is/pictures/