Nú ætlum við að halda áfram að hittast yfir súpudisk, fimmti súpufundur vetrarins verður á föstudag 29. mars. Það var mjög góð mæting í síðasta súpuhádegi en rúmlega 50 manns mættu.
Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum.
Boðið verður upp á súpu og brauð eins og venjulega.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.
Verðinu verður stillt í algjört hóf eða eingöngu á kostnaðarverði kr. 500.-
Fimmti fundurinn í súpuröðinni verður föstudaginn 29. mars kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal okkar í Safamýri.
Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu og endilega takið með ykkur félaga.
Kveðja Knattspyrnufélagið FRAM