Íþróttaskóli FRAM fyrir börn á aldrinum 18 mánaða – 5 ára hefur verið starfræktur í Grafarholti og Safamýri um langt árabil.
Í íþróttaskólanum kynnast börnin íþróttum á skemmtilegan og fjölbreyttan hátt. Börnin æfa grófhreyfingar, jafnvægi, styrk, úthald og líkamsvitund. Þau læra hópleiki og reglur í þeim og styrkja með því félagsfærni sína. Auk alls þessa er íþróttaskólinn skemmtileg samverustund foreldra og barns.
Haldin eru tvö 12 vikna námskeið á ári hverju. Annað að hausti (september-nóvember) og hitt að vori (janúar-apríl). Námskeiðið fer fram á laugardagsmorgnum í íþróttahúsi Ingunnarskóla.
Knattspyrnufélagið FRAM leitar nú að öflugu fólki til að taka að sér umsjón íþróttaskóla FRAM frá og með næsta hausti.
Það er kostur að viðkomandi hafi reynslu af íþróttastarfi og starfi með börnum. Einnig að viðkomandi hafi lokið námi í íþróttafræðum eða leggi stund á slíkt nám.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Þór íþróttastjóra (toti@fram.is) eða Daða íþróttafulltrúa (dadi@fram.is). Þá má einnig nefna að síðasti tími vonámskeiðsins er laugardaginn 30. mars og eru áhugasamir hvattir til að kíkja við í Ingunnarskóla milli kl. 9:00-12:00 og kynna sér starfsemina.
Almenningsíþróttadeild FRAM