fbpx
Súpa vefur

Fallegur súpudagur og vor í lofti

Við FRAMarar héldum í dag sjötta súpufund vetrarins. Okkur telst til að það hafi verið tæplega 50  menn og konur sem gæddu sér  á þessari líka fínu súpu. Súpan í dag mjög gó, pínu sterk en matarmikil.

Það er alltaf gaman að sjá alla þessa FRAMarar á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins. Margt að ræða og stemmingin góð í dag. Reyndar margir frá í dag, kominn sumarfiðringur í menn og konur.

Næsti súpufundur verður föstudaginn 24. maí 2019.

Við FRAMarar þökkum öllum þeim sem mættu í dag, það var vel mætt, fyrir það erum við mjög þakklát og hvað þessi uppákoma heppnast alltaf vel.

Takk fyrir komuna og sjáumst í maí.

ÁFRAM FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!