fbpx
Karen gegn ÍBV vefur

Þrjár landsliðskonur framlengja!

Landsliðskonurnar Ragnheiður Júlíusdóttir, Þórey Rósa Stefánsdóttir og Karen Knútsdóttir hafa allar skrifað undir nýjan 2 ára samning við Fram. Það þarf ekki að fjölyrða um gæði þessa leikmanna enda hafa þær verið í fremstu röð í íslenskum kvennahandbolta síðastliðin ár.

Ragnheiður Júlíusdóttir

Ragnheiður Júlíusdóttir er uppalin í Fram og hefur verið meðal bestu leikmanna efstu deildar kvenna síðan hún hóf sinn feril í meistaraflokki 2013. Hún er á sínu sjöunda keppnistímabili með Fram og hefur skorað yfir 1000 mörk fyrir okkur Framara. Ragnheiður hefur leikið um 25 landsleiki og skorað í þeim tæplega 30 mörk. Við erum gríðarlega ánægð að halda henni í okkar röðum enda besta skytta landsins hér á ferð.

Þórey Rósa

Þórey Rósa Stefánsdóttir kom til okkar í Fram árið 2005 frá ÍR og lék með liðinu þar til árið 2009 er hún hélt utan í atvinnumennsku. Fyrst til Emmen í Hollandi til ársins 2011 en lék síðan með VFL Oldenburg í Þýskalandi og hélt síðan til Danmerkur og lék með Team Tvis Holstebro til 2013. Frá 2013 lék hún með Vipers Kristiansand í Noregi. Árið 2017 kemur hún aftur heim til Fram.
Þórey Rósa var valin handknattleikskona ársins bæði árið 2017 og 2018 og er alger lykilmaður í landsliði Íslands og annar fyrirliða landsliðsins. Þórey hefur leikið ríflega 100 landsleiki og skorað í þeim rúmlega 300 mörk. Hún er að okkar mati besti hægri hornamaður deildarinnar og þó víðar væri leitað og erum við því gríðarlega ánægðir að halda henni í okkar röðum.

Karen Knútsdóttir er uppalin í Fram og lék með liðinu þar til hún hélt í atvinnumennsku erlendis árið 2011. Fyrst fór hún til Blomberg/Lippe í Þýskalandi en svo til Danmerkur þar sem hún lék með Sönderjyske. Árið 2014 hélt hún til Frakklands þar sem hún lék með liði Nice við góðan orðstír.
Karen var valin handknattleikskona ársins árið 2011 og 2014 og hefur verið fyrirliði landsliðsins um nokkurt skeið. Karen hefur spilað yfir 100 landsleiki og skorað í þeim tæp 400 mörk. Karen er gríðarlega reyndur og sterkur leikmaður sem við Framarar erum afar stoltir af að hafa í okkar röðum.

Það er er sannarlega mikið ánægjuefni fyrir okkur í Fram að þessar frábæru handboltakonur hafi framlengt hjá okkur. Þær eru ekki bara frábærir leikmenn heldur frábærir liðsmenn og miklir Framarar.

Til hamingju stelpur og til hamingju Framarar!

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!