KSÍ hefur valið hóp sem kemur saman og tekur þátt í verkefninu “Þjálfum saman æfing” / Suðvestur horn. Hópurinn kemur saman á æfingu á vegum KSÍ fimmtudaginn 19.mars kl. 16:30 á Hertz vellinum sem er heimavöllur ÍR-inga. Að þessu sinni eru æfingarnar í samstarfi við ÍR og Leiknir R. og verða þjálfarar frá báðum félögum á æfingunni ásamt þjálfurum frá KSÍ.
Við FRAMarar erum stoltir af því að eiga tvo fulltrúa í þessum æfingahópi en þeir sem voru valdir frá FRAM að þessu sinni eru:
Mikael Trausti Viðarsson FRAM
Stefán Orri Hákonarson FRAM
Gangi ykkur vel drengir.
ÁFRAM FRAM