Það gleður okkur að tilkynna að Aron Þórður Albertsson hefur framlengt samning sinn við Fram um tvö ár og leikur því með liðinu til loka tímabilsins 2023.
Hann lék með Fram til 2014 en fór þá til HK og síðar Þróttar þangað til hann kom heim 2020.
Aron hefur leikið 50 leiki með Fram í deild og bikar og skorað í þeim 4 mörk.
Það verður gaman að fylgjast með Aroni í bláu treyjunni í Pepsi Max deildinni á næsta tímabili.
Knattspyrnudeild Fram