fbpx
Supuvefur

Fyrsti Súpufundur FRAM verður fimmtudaginn 30. sept.

Ágætu Framarar

Nú ætlum við að halda áfram að hittast yfir súpudiski, þetta verður áttundi veturinn sem við höldum þessum sið. Veturinn 2020-2021 fór reyndar fyrir lítið.

Fyrsti  súpufundur vetrarins verður á fimmtudaginn 30. sept. Það hefur verið almenn ánægja með súpufundina og yfirleitt  vel mætt.
Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum.

Boðið verður upp á súpu, brauð og kaffi  eins og venjulega.

Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.

Verðið hefur verið óbreytt í sjö ár, en verður núna  kr. 1000.-

Fyrsti  fundurinn í  súpuröðinni verður fimmtudaginn 30. sept.  kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal okkar í Safamýri.

Athugið að núna verður súpan á fimmtudögum í vetur.

Frumkvöðull að súpuhádeginu Hörður „ Castro“ Einarsson verður ekki með okkur í veturinn frekar en undanfarin ár  en ég er sannfærður um að hann verður áfram með okkur í anda enda var þetta honum mikið hjartans mál að finna vettvang fyrir alla FRAMara til að koma saman og eiga góða stund.

Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu  og endilega takið með ykkur félaga.

Allir velkomnir.

Kveðja

Knattspyrnufélagið FRAM

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!