Ágúst Þór Jóhannsson og Árni Stefán Guðjónsson landsliðsþjálfarar Íslands U-18 hafa valið þá 16 leikmenn sem taka þátt í undankeppni EM í Serbíu 22. – 27. nóvember nk. Auk þess eru 6 leikmenn valdir til vara en þær eru til taks ef eitthvað kemur upp.
U-17 ára landslið kvenna tryggði sér 2. sætið á B-keppni EM í Litháen í sumar en þær töpuðu úrslitaleiknum naumlega fyrir Makedóníu eftir að hafa unnið Spánverja í undanúrslitum. Þessi árangur tryggði liðinu sæti í undankeppninni en það er mikið undir, liðið sem vinnur þessa undankeppni kemst á EM U-19 ára landsliða 2023 og tryggir U-17 ára landsliðinu einnig sæti á EM 2023.
Fimm lið leika í undankeppninni, ásamt íslensku stúlkunum verða þar Austurríki, Slóvakía, Slóvenía og heimakonur frá Serbíu. Leikið verður í SC Vozdovac höllinni í Belgrad.
Leikjaplan íslenska liðsins:
mán. 22.nóv kl. 15:30 Slóvenía – Ísland
þri. 23.nóv kl. 15:30 Ísland – Slóvakía
fim. 25.nóv. kl. 18:00 Serbía – Ísland
fös. 26.nóv. kl. 17:00 Ísland – Austurríki
Athugið að hér eru um staðartíma að ræða, leikirnir verða auglýstir á miðlum HSÍ þegar nær dregur en auk þess verður ítarleg umfjöllun um leiki liðsins.
Við Framarar erum stoltir af því að eiga einn fulltrúa í þessum lokahópi Íslands en markvörðurinn Ingunn María Brynjarsdóttir var valinn frá Fram að þessu sinni.
Ingunn María Brynjarsdóttir Fram
Gangi þér vel Ingunn María.
ÁFRAM FRAM