Við FRAMarar héldum í dag annan súpufund vetrarins. Það hefur því miður verið mikil óreyða á súpufundunum síðustu árin en nú horfir vonandi til betri vegar.
Okkur telst til að það hafi verið rúmlega 30 menn og konur sem gæddu sér á þessari líka fínu súpu. Súpan í dag afbragðsgóð.
Það er alltaf gaman að sjá alla þessa FRAMarar á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins. Margt að ræða og stemmingin góð í dag.
Næsti súpufundur verður fimmtudaginn 31. mars 2022.
Við FRAMarar þökkum öllum þeim sem mættu í dag, erum mjög þakklát og hvað þessi uppákoma heppnast alltaf vel.
Takk fyrir komuna og sjáumst í mars.
ÁFRAM FRAM