Íþróttafélög þrífast ekki án sjálfboðaliða og einn okkar allra tryggasti og duglegasti sjálfboðaliði sem hefur starfað fyrir handboltann í Fram í mörg ár er Ingunn Gísladóttir. Hún hefur unnið ótrúlega óeigingjarnt starf árum saman í þágu deildarinnar. Dóttir Ingunnar veiktist alvarlega og var á endanum greind með erfiðan og sársaukafullan sjúkdóm sem kallast endómetríósa. Eftir greiningu tók við mikil þrautaganga við að fá bót á þessu erfiða meini. Bið eftir aðgerð á Landspítala var áætluð rúm 2 ár og því brugðu þær mæðgur á það ráð að leita hjálpar hjá þekktum sérfræðingi á einkastofu. Hann framkvæmdi aðgerðina en Sjúkratryggingar Íslands greiða ekki kostnaðinn og því fellur hann á þær mæðgur.
Við í Fram höfum því tekið þá ákvörðun að styðja við bakið á okkar konu og munum láta allan ágóða af leik FRAM og Víkings næstkomandi laugardag renna til Ingunnar og fjölskyldu hennar. Þessi styrkur mun aðstoða Ingunni við að standa straum af þessum mikla kostnaði sem er rúmlega 1 milljón króna. Ingunn á það skilið frá okkur enda fáir með stærra Framhjarta en hún.
Við hvetjum alla til þess að koma á leikinn og borga sig inn, miðaverð 2.000 krónur. Allur ágóði mun renna óskertur til Ingunnar og fjölskyldu. Við munum einnig vera með áritaða landsliðstreyju af Karen Knútsdóttur á uppboði fram til föstudagsins í næstu viku. Upphafsboð er 25.000 krónur.
Þeir sem vilja kynna sér sjúkdóminn betur er bent á Endósamtökin (endo.is). Ingunn Gísladóttir er sannur Framari sem hefur lagt mikið á sig í starfi félagsins gegnum tíðina og á okkar stuðning skilið!
Frjáls framlög og þeir sem ekki komast á leikinn geta lagt sitt að mörkum með því að leggja inn á styrktarreikning Ingunnar og fjölskyldu 0331-26-003849, kt. 100269-3849
Fram – Víkingur kl. 14.00 í Safamýrinni. Fjölmennum Framarar!
Miðar á StubburApp
Áfram FRAM!