fbpx
Fram stelpur

Skráning er hafinn í sumarskóla FRAM í Grafarholti og Úlfarsárdal

SUMARNÁMSKEIÐ FRAM 2022 Grafarholt og Úlfarsárdalur

Knattspyrnuskóli FRAM og Íþróttaskóli FRAM verða í sumar starfræktir í nýrri Íþróttamiðstöð FRAM Úlfarsárdal.   Þar býður félagið upp á öruggt umhverfi og glæsilega aðstöðu í hjarta hverfisins. Námskeiðin fara fram í Íþróttamiðstöð  FRAM í Úlfarsárdal og nágrenni. Knattspyrnuskólinn verður starfræktur á æfingasvæði FRAM í Úlfarsárdal á sama svæði og íþróttaskólinn. Handboltanámskeiðið verður svo haldið í nýju Íþróttamiðstöð FRAM í Úlfarsárdal.

ÍÞRÓTTASKÓLI  FRAM

Íþróttaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 5-10 ára sem hafa gaman af íþróttum og útivist.  Farið verður í fjölbreytta og skemmtilega leiki, hinar ýmsu íþróttagreinar kynntar og einnig verður farið í stuttar ferðir.  Skólinn verður rekinn samhliða knattspyrnuskólanum þannig að einstaklingar geta valið hvort þeir eru eingöngu í knattspyrnu eða vilja hafa mikla fjölbreytni.
Hvert námskeið stendur í 2 vikur frá kl. 09:00-16:00 alla virka daga.  Jafnframt er boðið upp á hálfsdagsnámskeið frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00. Hægt er að velja fyrir eða eftir hádegi,  einnig knattspyrnuskóla eftir hádegi og íþróttaskóla fyrir hádegi. Ekki verður boðið upp á heitan mat og þurfa börnin að koma með nesti. 
Boðið verður upp á gæslu í Íþróttamiðstöð FRAM í Úlfarsárdal frá kl. 07:45-09:00 og kl. 16:00-16:30.

Námskeið 1.  09 -16. júní     09:00-16:00 (6 dagar)     

Námskeið 2.  20 – 01. Júlí    09:00-16:00  

Námskeið 3.  04 – 15. júlí     09:00-16:00

Námskeið 4.  18 – 22. júlí     09:00-16:00 (viku námskeið).

HANDBOLTASKÓLI FRAM

Handboltaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 6-13 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig.  Námskeiðið stendur í 1 viku, frá kl. 09:00-12:00 (börn fædd 2013-2016) og 13:00-16:00 (börn fædd 2009-2012) virka daga.  Námskeiðið fer fram Íþróttamiðstöð FRAM Úlfarsárdal. Kennarar eru íþróttamenntaðir og handboltaþjálfarar hjá FRAM.

Námskeið 1.   15 –  19. ágúst         13:00-16:00   (börn fædd 2013-2016).

Námskeið 2.   15 –  19. ágúst         09:00-12:00   (börn fædd 2009-2012).

KNATTSPYRNUSKÓLI FRAM

Knattspyrnuskóli FRAM er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 5-12 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Mikil áhersla er lögð á leikformið hjá yngstu þátttakendunum en meiri sérhæfing og tækni hjá þeim eldri.  Hvert námskeið stendur í 2 vikur, frá kl. 13:00-16:00 alla virka daga.
Boðið er upp á gæslu í Íþróttamiðstöð FRAM í Úlfarsárdal frá kl.12:15 og er það  innifalið í gjaldinu. 

Námskeið 1.  09 -16. júní     13:00-16:00 (6 dagar)     

Námskeið 2.  20 – 01. Júlí    13:00-16:00  

Námskeið 3.  04 – 15. júlí     13:00-16:00

Námskeið 4.  18 – 22. júlí     13:00-16:00 (viku námskeið).

Skráning

Skráning hefst  26. apríl og fer fram á heimasíðu FRAM www.fram.is.
Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Sportabler skráningarkerfi FRAM.
Fram | Shop (sportabler.com)

Námskeiðsgjald í knattspyrnuskóla og íþróttaskóla ½ dagur er kr. 12.000.-

Íþróttaskóli 09:00-16:00  kr. 23.000.-

Námskeiðsgjald í handboltaskóla er kr. 6500.-  (5 dagar).

Veittur er 10% systkinaafsláttur og einnig er veittur 10% afsláttur ef keypt eru fleiri en eitt námskeið. Innifalið í verði er: Gæsla, veisla í lok hvers námskeiðs og skemmtilegt námskeið unnið af fagfólki. 


Allar nánari upplýsingar um námskeið á vegum FRAM er hægt að fá í síma 587-8800 skrifstofa FRAM í Úlfarsárdal og 533-5600 skrifstofa FRAM í Safamýri milli kl 09:00 og 16:00 og í gegnum tölvupóst  toti@fram.is og dadi@fram.is

Í von um gott samstarf í sumar

Daði Guðmundsson íþróttafulltrúi FRAM og Þór Björnsson Íþróttastjóri FRAM í Grafarholti og Úlfarsárdal

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!