Hólmsheiðarhlaupið verður haldið í fyrsta sinn fimmtudaginn 30. júní n.k. en hlaupið er samstarfsverkefni Almenningsíþróttadeildar Fram og UltraForm. Hlaupið er utanvegahlaup og verða tvær vegalengdir í boði, 10 km og 22 km. Hlaupið er að mestu á malarstígum á Hólmsheiði, auk þess sem farnar eru tvær ferðir á Úlfarsfellið hjá þeim sem fara lengri leiðina. Hlaupaleiðin er mjög skemmtileg og fjölbreytt og gefur góða innsýn í þetta frábæra útivistarsvæði sem leynist í austurjaðri borgarinnar. Hægt er að skrá sig inn á www.hlaup.is.
Share this post
Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email