Það var stór og glæsilegur hópur Framarar sem mætti í nýja Íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal síðastliðinn sunnudag. Þar voru mættir saman FRAMarar í 4 og 5. fl.karla og kvenna handbolta að leggja í ferð til Svíþjóðar á hið árlega Partille-cup mót.
Við FRAMarar höfum farið á þetta mót annað hvert ár síðastliðin þrjátíu ár eða svo, þannig að það er kominn þokkaleg hefð á að fara á þetta mót. Við höfum samt ekki farið í nokkur ár núna útaf einhverri kvef pest sem hefur riðlað heiminum aðeins.
Hópurinn sem lagði afstað á sunnudag telur 103 keppendur, fararstjóra og þjálfara, auk þess sem margir foreldarar hafa skipulagt ferð til Svíþjóðar til að fylgjast með krökkunum á mótinu.
Partille-cup er stærsta handboltamót í heimi en áætlað er að keppendur á mótinu núna séu eitthvað í kringum 15.000 í yfir 1000 liðum frá 30 þjóðlöndum.
Mótið fer fram í Gautaborg en þar verða spilaðir yfir 4000 handboltaleikir á næstu dögum. Mótinu líkur svo á laugardag 9. júlí en þá verður leikið til úrslita.
Mótið er að mestu leikið utandyra en úrslitaleikirnir eru samt leiknir inni.
Mótið er ekki bara handbolti og það verður ýmislegt brallað á meðan á mótinu stendur farið í vatnagarð, tívolí, skemmtikvöld þar sem öll liðin koma saman osfv.
Við vonum að allir skemmtil sér vel í Gautaborg í vikunni, að liðunum okkar gangi sem best og allir komi sælir og glaðir heim. Góða skemmtun FRAMarar.
ÁFRAM FRAM