Byrjar laugardaginn 10. september í íþróttasal Ingunnarskóla.
Íþróttaskóli Fram er ætlaður börnum á aldrinum 2-5 ára. Lögð er áhersla á fjölbreyttar æfingar í formi leikja, stöðva og áhalda sem er í samræmi við færni þeirra og getu. Börnin efla þol, vöðvastyrk, liðleika, viðbragð og samhæfingu um leið eflist sjálfstraust og félagsfærni í skemmtilegri samveru með foreldrum/forsjáraðilum og öðrum börnum.
Börn fædd 2019 – 2020 eru frá kl. 10:00 – 10:50
Börn fædd 2017 – 2018 eru frá kl. 11:00 – 11:50.
Við mælum með að börnin séu berfætt eða í sokkum með gúmmí undir svo þau nái sem bestu gripi á gólfinu og renni ekki. Foreldrar/forsjáraðilar eru hvattir til að taka þátt í tímunum og vera börnunum til aðstoðar.
Verð fyrir námskeiðið er 16.900, 12 skipti. Greitt er í gegnum Sportabler eða með því að smella hér https://www.sportabler.com/shop/fram/ithrottaskoli
Nánari upplýsingar eru í síma 5335600
Leiðbeindur eru íþróttafræðingar og sjúkraþjálfari með mikla reynslu af þjálfun barna.