Ágætu Framarar
Nú ætlum við að halda áfram að hittast yfir súpudiski, þetta verður níundi veturinn sem við höldum þessum sið og nú verður við á nýjum stað í Úlfarsárdal.
Fyrsti súpufundur vetrarins verður á fimmtudaginn 29. sept. Það hefur verið almenn ánægja með súpufundina og yfirleitt vel mætt. Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum.
Boðið verður upp á súpu, brauð og kaffi eins og venjulega.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.
Verðið verður núna kr. 1000.-
Fyrsti fundurinn í súpuröðinni verður fimmtudaginn 29. sept. kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal okkar í Úlfarsárdal.
Athugið að núna verður súpan á fimmtudögum í vetur.
Frumkvöðull að súpuhádeginu Hörður „ Castro“ Einarsson verður ekki með okkur í veturinn frekar en undanfarin ár en ég er sannfærður um að hann verður áfram með okkur í anda enda var þetta honum mikið hjartans mál að finna vettvang fyrir alla FRAMara til að koma saman og eiga góða stund.
Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu og endilega takið með ykkur félaga.
Allir velkomnir.
Kveðja
Knattspyrnufélagið FRAM