Emilía Ingvadóttir hefur gengið til liðs við Fram frá KR. Hún gerir 2 ára samning við félagið.
Emilía, sem er tvítugur miðvörður, kom til Fram á láni frá KR fyrir síðasta tímabil og gegndi stóru hlutverki í glæsilegum árangri liðsins í 2.deild kvenna. Emilía spilaði þá 15 leiki af 16 í deildinni og skoraði 1 mark. Þá var hún valin maður leiksins í leik liðsins gegn Víkingi í Mjólkurbikarnum, sem var hennar fyrsti keppnisleikur með liðinu.
Við erum virkilega ánægð að fá Emilíu alfarið til liðs við félagið og hlökkum til að hafa hana með okkur í Lengjudeildinni á næsta tímabili.
Velkomin!