Alexa Kirton hefur samið við FRAM og mun spila með meistaraflokki kvenna á næsta tímabili í Lengjudeildinni.
Alexa er 23 ára varnarsinnaður miðjumaður sem átti frábæran feril með New Mexico í bandaríska háskólaboltanum þar sem hún er leikjahæsti leikmaður skólans frá upphafi. Hún samdi við Stjörnuna fyrir síðasta tímabil, þar sem hún kom við sögu í 7 leikjum í Bestu deildinni.
Alexa er mjög kraftmikill miðjumaður. Líkamlega sterk með góða boltameðferð og mikla leiðtogahæfileika. Við teljum hana styrkja liðið verulega og hlökkum mikið til að sjá hana spila í bláu treyjunni næsta sumar.
Knattspyrnudeild Fram